Nánar um Björgólf og frú í Cannes


Alveg eins og bankarnir voru misskildir fyrir ári síðan.

Það sem okkur vantar einmitt núna er að skuldsetja Landsvirkjun meira til þess að halda álverspartýinu gangandi.
Hnakkus: Undarleg afsökunarbeiðni biskups


Hjálmar Gíslason orðar þetta svona:
"Ef síðustu 5 ár hafa kennt okkur eitthvað, er það hversu óholl óhófleg áhersla á einstök verkefni eða greinar getur verið. Álversframkvæmdirnar fyrir austan settu af stað atburðarásina sem styrkti krónuna, blés út bankana og sprakk svo fyrir hálfu ári síðan.
Eftir stöndum við með sama kaupmátt og fyrir framkvæmdirnar (og fallandi), margfalt meira atvinnuleysi (og vaxandi), miklu meiri skuldir (og óvissu), gjaldmiðil í henglum og það að 80% af raforkuframleiðslu okkar (og vaxandi) fara í starfsemi sem við erum að öllum líkindum að borga með þessi misserin. Á sama tíma náði önnur heilbrigð uppbyggingarstarfsemi ekki að njóta sín. Með Helguvík og Bakka er eins og menn ætli að lækna sárið á hálsinum með sömu fallexinni og Samfylkingin í þetta sinn í broddi fylkingar."
Í gær voru lög um bann við kaupum á vændi var samþykkt á Alþingi. Þrír þingmenn, Björn Bjarnason, Jón Magnússon og Kjartan Ólafsson, greiddu atkvæði gegn málinu. Þeir styðja sumsé vændiskaup. Gott að þessir menn eru allir að hætta á þingi